Fram 3.fl kvenna

05.03.2009 12:29:33 / fram3fl

Dómaranámskeið

Sælar stelpur

Fimmtudaginn 2. apríl  kl. 17:00 verður haldið unglingadómaranámskeið í íþróttahúsi FRAM.   Þetta er upplagt tækifæri fyrir alla þá sem gaman hafa af fótbolta að koma og kynna sér reglurnar í fótbolta og ná sér í próf.
Það er alltaf skortur á dómurum og því er þetta líka tækifæri fyrir foreldra að koma og leggja félaginu lið og dæma nokkra leiki á ári.
Dómaraskirteini veitir frína aðgang að öllum knattspyrnuleikjum á Íslandi.

Fyrirkomulag

Námskeiðið tekur c.a 1 klst. og er aðaláherslan á knattspyrnulögin.  Námskeiðum lýkur síðan með skriflegu prófi viku síðar..

Þátttakendur

Námskeiðin eru fyrir alla sem verða 15 ára á almanaksárinu og eldri.

Réttindi

Sá sem lýkur unglingadómaraprófi hefur rétt á að dæma í 4. flokki og neðar og vera aðstoðardómari upp í 2. flokk.

Kennari á námskeiðinu er Magnús Jónsson umsjónarmaður dómaramála hjá KSÍ
Skráning er hafin á toti@fram.is

Í von um að sjá sem flesta.

Kveðja,
Þór Björnsson  toti@fram.is
533 5600 / 898 8599


» 2 hafa sagt sína skoðun


Heimsóknir
Í dag:  3  Alls: 3092